Hér sérðu yfirlit yfir þá þjónustu sem Hestaborg veitir. Helstu þættir hvers þjónustuliðar eru taldir upp og útskýrðir eins og þörf krefur.
Hikið aldrei við að hafa samband við okkur ef þú hefur verkefni sem ekki er nefnt sérstaklega hér. Við tökum gjarnan að okkur ýmis tilfallandi verkefni til úrlausnar.
Hestaborg tekur að sér að grunnskrá og örmerkja hesta á höfuðborgarsvæðinu. Þjónustan er einnig í boði um allt suðurland, séu merktir fimm eða fleiri hestar á sama stað í einu.
Nánari upplýsingar veitir Svandís Beta í síma 692 7986. Pantanir eru afgreiddar í sama símanúmeri. Þær má einnig senda beint á netfangið okkar, en þá er nauðsynlegt að gefa upp símanúmer þar sem allar pantanir staðfestast símleiðis.
Hestaborg annast járningar á höfuðborgarsvæðinu. Starfsfólk okkar býr yfir margra ára þekkingu og reynslu. Fagleg og vönduð vinnubrögð.
Nánari upplýsingar veitir Gúndi í síma 896 1675.
Tökum hesta í tamningu og þjálfun. Getum komið í hús á Víðidalssvæðinu og í Fjárborg. Einnig getum við tekið hesta í tamningu með fóðri og hirðingu. Margrar ára reynsla og vönduð vinnubrögð. Pantanir og nánari upplýsingar annast Svandís Beta í síma 692 7986.
Hestaborg býður upp á aðstöðu fyrir hesta í fóður og hirðingu í Efri-Fák sem er félagshús Fáks í Víðidal og Neðri-Fák sem er félagshús Fáks við Bústaðaveg. Á báðum stöðum er góð aðstaða fyrir bæði hesta og menn.
Í Efri-Fák bjóðum við upp á eins-, tveggja- og þriggja- hesta stíur, allt eftir því hvað hentar hestum og eigendum best. Á staðnum er ný kaffistofa og salernisaðstaða.
Í Efri-Fák er gott gerði og aðgangur að stóru reiðgerði. Frábærar reiðleiðir í allar áttir og stutt á keppnisvöllinn og í Reiðhöllina. Hey er gefið tvisvar á dag og daglega er sag/spænir borið undir.
Í Neðri-Fák eru tveggja hesta rúmgóðar stíur. Þar eru einnig mörg gerði. Góð hnakkageymsla, kaffistofa og salernisaðstaða. Hey er gefið tvisvar á dag og sag/spænir borið undir daglega. Falleg reiðleið liggur upp Elliðaárdalinn, framhjá stíflunni og upp í Víðidal. Þaðan eru reiðleiðir í allar áttir. Frábær aðstaða fyrir folöld þar sem þeim er hleypt út daglega.
Pantanir og nánari upplýsingar fást hjá Gúnda í síma 896 1675.
Tamningar og Þjálfun
Við hjá Hestaborg byrjum haust tamningarnar í byrjun september.Ef þú ert með hest sem vantar tamningu, endilega hafðu samband við okkur í síma 692-7986.
Allt efni er varið höfundarrétti - © Hestaborg - Allur réttur áskilinn. Afritun í heild eða hluta er með öllu óheimil. - hestaborg@hestaborg.is