Hér getur þú fundið á einum stað allar upplýsingar um fyrirhugaðar ferðir á vegum Hestaborgar. Við reynum að uppfæra síðuna jafnóðum og nýjar upplýsingar liggja fyrir. Þó hvetjum við alla sem hafa hug á að taka þátt í ferðum okkar til að hafa samband við Svandísi í síma 6927986 áður en að ferðinni kemur til að fá endanlega staðfestingu á öllum smáatriðum sem gætu skipt máli.
Þann 17. júlí 2010 verður lagt af stað í níu daga ferð frá Stað í Borgarfirði. Farið verður upp meðfram Langavatni, yfir á Skógarströndina, riðið yfir Álftafjörð á fjöru, og svo um Kerlingaskarð þangað sem leið liggur yfir á Löngufjörur. Ferðinni lýkur svo aftur 25. júlí þar sem hún hófst á Stað í Borgarfirði.
Myndakvöld úr vor-og sumarferðum Fáks 2009 var haldið fimmtudagskvöldið 3. desember í Félagsheimili Fáks. Við borðuðum saman og skoðuðum skemmtilegar myndir upp á stóru sýningartjaldi úr ferðunum. Við áttu notalega stund saman og rifjuðum upp ferðirnar og minntumst margra góðra stunda.
Sumarferð Fáks var farin 18. – 26. júlí. Farið var um Fjallabak syðri og nyrðri, svæðið umhverfis Heklu, Tindfjallajökul og Torfajökul. Hestamenn verða seint þreyttir á þessu umhverfi. Laugardaginn 18. júlí var lagt af stað í þessa átta daga hestaferð frá Gunnarsholti á Rangárvöllum, þar sem ferðin endaði svo einnig sunnudaginn 26. júlí.Lagt var af stað í blíðskaparveðri frá Gunnarsholti, eins og áður sagði, framhjá Keldum og að gangnamannakofanum Fossi þar sem gott var að stoppa og hvíla menn og hesta í góðri girðingu. Áfram var haldið eftir Fjallabak syðri að Hungufiti þar sem gist var. Fyrsta dagleiðin mældist 39 km. Í Hungurfiti er gangnamannaskáli, sem búið er að endurbæta, norðan við Tindafjallajökul. Á staðnum var ágæt girðing fyrir hestana þar sem þeim var gefið hey. Mannfólkið fékk hins vegar matmikla kjötsúpu og fína marengstertu í eftirrétt. Kvöldið var rólegt og notalegt og var góður andi í hópnum sem átti eftir að fylgja honum alla ferðina.Önnur dagleið var farin í góðu veðri frá Hungurfiti framhjá Hvítmaga og yfir í Krók þar sem gott var að hvíla menn og dýr. Einn ferðalangur gerði sér lítið fyrir í góða veðrinu og stökk af brúnni við Krók út í Markarfljót aftur og aftur. Frá Króki var riðið yfir Markarfljót, ferðamenn styttu sér leið um Klámbrekkur þar sem útsýnið var stórbrotið í brattri brekkunni. Þaðan lá leiðin í Hvannagil sem var náttstaður ferðamanna og er jafnframt miðpunktur Syðri-Fjallabaksleiðar. Önnur dagleið mældist 22 km. Í Hvannagili er góður skáli á tveimur hæðum. Þar komust menn og konur í sturtu. Hestum var gefið hey í ágætis girðingu en mannfólkið grillaði sér lambakjöt og fékk sér blandaða ávexti í eftirrétt.Þriðja morguninn var haldið frá Hvannagili og fljótlega var riðið yfir Kaldaklofskvísl í grýttu vaði. Þar var farið framhjá öðrum rekstri og gekk það mjög vel. Áfram var riðið inná Fjallabak syðri, yfir Mælifellssand, sem er u.þ.b. 25 km langur, þrisvar yfir Brennikvísl, framhjá Mælifelli að Brytalækjum, yfir Hólmsá, suður um Álfavötn og loks að Hólaskjóli þar sem var gist yfir nótt. Veðrið var gott þennan dag en ferðamenn máttu samt þola smá sandfok á Mælifellssandi og urðu skemmtilega skítugir fyrir vikið. Birgðabíllinn fylgdi ferðafólki þessa dagleið og bílstjórinn kom upp gerði fyrir hestana svo auðveldara væri að stoppa og hvíla, skipta um hesta og borða nesti. Þriðja dagleiðin mældist 50 km. Í Hólaskjóli er stór og mikill skáli þar sem ferðafólk komst í sturtu sem var nauðsynleg eftir sandfokið fyrr um daginn. Hestar fengu heyið sitt í ágætis girðingu en mannfólkið grillaði sér fisk og fékk skúffuköku í eftirrétt.Fjórða dagleiðin var lengst og mældist 60 km. Riðið var frá Hólaskjóli, meðfram Eldgjá, um Herðubreiðarháls og Jökuldali, norður fyrir Kirkjufell og framhjá Landmannalaugum. Farið var hjá Norðurnámum, Ljótapolli og Frostastaðavatni sem er í 572 metra hæð yfir sjávarmáli. Svo var farið í gegnum Dómadal og í Landmannahelli þar sem gist var í tvær nætur. Bílstjórinn á birgðabílnum sá um að búa til gerði fyrir hestana á leiðinni og færði ferðafólki veitingar. Þessi dagleið var mjög falleg og skemmtileg og veðrið var yndislegt. Landmannahellir er friðsæll áningastaður í “Friðlandi að fjallabaki”. Hellirinn er í alfaraleið þeirra sem fara ríðandi um hálendið. Þarna er góð aðstaða fyrir hesta og fólk. Þrjú stór gerði eru til staðar fyrir hrossin og þar var þeim gefið hey. Gist var í tveimur sumarhúsum og fór vel um ferðalanga. Fólk gat komist í sturtu sem var notalegt eftir svo langa dagleið. Fleiri hestahópar áttu leið um hjá Landmannahelli á meðan Fákshópurinn dvaldi þar.Fimmti dagurinn í ferðalaginu var hvíldardagur og fólk slappaði vel af. Sólin skein á ferðalanga og notuðu margir tækifærið og lágu í sólbaði á meðan aðrir fóru í gönguferðir upp á nærliggjandi fjöll. Sumir létu nægja að rölta að Landmannahelli og skoða hann. Seinnipart dags birtust gamlir ferðafélagar frá fyrri árum sem einnig voru í hestaferð. Þeim var vel tekið og skemmti fólk sér saman langt fram á nótt.Að morgni sjötta dags ferðalagsins var haldið frá Landmannahelli meðfram Helliskvísl og suður fyrir Sauðleysu og um Klofning í Áfangagili undir Valafelli. Þetta var frekar stutt og þægileg dagleið sem mældist 25 km. Í Áfangagili er burstabær/skáli og ágætis aðstaða fyrir hesta og menn. Þar var hestum gefið hey en mannfólk snæddi grillaðan kjúkling og Royal karamellubúðing í eftirrétt.Sjöunda daginn var farið frá Áfangagili og áð við Þjórsá í góðu ferðaveðri. Hekla skartaði sínu fegursta í fjarska og lá leiðin niður að Leirubakka þar sem gist var í reiðhallarloftinu. Dagleiðin var frekar stutt og mældist 30 km. Hestarnir komust loks í góða græna grasið. Leirubakki er gömul jörð og er höfuðból að fornu og nýju. Þar er nú gufubað og heitir pottar sem komu sér verulega vel fyrir lúna ferðalanga sem gátu slakað vel á. Á Leirubakka er útsýnið fagurt. Þar gnæfir Hekla hæst en Búrfell í norðri gefur henni lítið eftir og svo sjást vel Bjólfell, Tindfjöll og fleiri fjöll í suðaustri og Skarðsfjall í vestri.Áttunda og síðasta dag ferðarinnar var farið yfir Ytri-Rangá og svo Heklubrautina niður að Gunnarsholti þar sem ferðin endaði. Leiðin mældist 27 km. Birgðabíllinn fylgdi ferðamönnum er farið var eftir Heklubrautinni og bílstjórinn færði fólki veitingar. Veðrið var ljómandi fínt og leiðin skemmtileg, eins og reyndar allur Fjallabakshringurinn.Ferðin gekk mjög vel og heppnaðist í alla staði eins og best verður á kosið. Ferðafélagar voru sammála um að fólk hafi verið afslappað og að gott andrúmsloft hafi ríkt alla leið. Maturinn var frábær alla daga bæði kvölds og morgna. Veðrið spillti ekki fyrir, það var mjög gott alla ferðina og allt gekk eins og í sögu.Ferðanefndin vill þakka öllum þeim sem komu með í þetta skemmtilega ferðalag.
Þann 5. – 7. júní var farið í vorferð félagsins. Keyrt var með hestana í Starrdal, þaðan sem lagt var af stað á föstudagskvöldi og riðið á Þingvelli. Er komið var að Skógarhólum tók Jón Helgi á móti ferðamönnum með rjúkandi súpu og brauði. Fólk ýmist gisti á Skógarhólum, í tjöldum fyrir utan eða keyrði heim til að sofa.Á laugardaginn 6. júní var farin skemmtireið um þjóðgarðinn. Veðrið var yndislegt, sól og blíða lék við ferðamenn og var næstum of heitt til útreiðar. Öðru hverju var stigið af baki og lágu þá flestir í sólbaði og spjölluðu saman. Í Almannagjá var tekið lagið og var þar flottur fjörtíu manna “Fákskór” sem þandi raddböndin.Ferðalangar lögðu að baki 15,5 km leið um þjóðgarðinn þennan dag. Jón Helgi sá um að grilla kvöldmat ofan í mannskapinn og Maggi diskó hélt uppi fjörinu langt fram á kvöld.Sunnudaginn 7. júní rigndi örlítið er riðið var tilbaka í Starrdal. Þaðan var svo aftur keyrt með hvern hest í sitt hús.Góð þátttaka var í vorferðinni, sem þótti heppnast ljómandi vel. Yfir fimmtíu manns tóku þátt og var ekki annað að heyra en að fólk hafi skemmt sér ljómandi vel.Ferðanefndin vill þakka öllum þeim sem komu með í þessa skemmtilegu vorferð.
Vorferð Fáks var farin helgina 7. – 8. júní 2008. Við keyrðum hestana upp að Litlu kaffistofunni á laugardeginum. Veðurspáin var mjög slæm og hættu nokkrir við vegna hennar en sumir komu þó keyrandi til okkar um kvöldið. Við vorum 14 sem fórum á hestunum í mestu rigningu sumarsins. Við vorum ansi hörð af okkur og skemmtum okkur vel þó rigningin og rokið væri mjög mikið. Á Nesjavöllum tók var góð aðstaða bæði fyrir hesta og menn. Er komið var á Nesjavelli beið okkar kaffi og kökur. U.þ.b. 14 manns, sem áður höfðu guggnað á veðrinu, komu á bílum seinnipartinn að Nesjavöllum. Um kvöldið fengum við tveggjarétta máltíð, Örn Einarsson (Össi) sá um að spila á harmónikuna og við hin sungum með, margir fóru í heitu pottana og allir skemmtu sér vel þetta kvöld.Morgunin eftir var glæsilegt morgunverðarhlaðborð. Sólin farin að skína og veðrið lék við okkur allan sunnudaginn. Við riðum frá Nesjavöllum og alla leið í bæinn eða hver í sitt hesthús, ferðin gekk ljómandi vel og var góður ferðaandi í hópnum.Sumarferð Fáks 2008 lá um Hreppa- og Biskupstungnamannaafrétt. Við lögðum af stað sunnudaginn 20. júlí í tíu daga hestaferð. Ferðin hófst á bænum Haga í Þjórsárdal í blíðskapar veðri. Fyrsta dagleiðin var mjög falleg, farið var um Þjórsárdal. Á leiðinni voru þrjár réttir og t.d. ein við bæinn Stöng, sem gaman var að skoða. Leiðin lá svo í Hólaskóg þar sem við gistum fyrstu nóttina. Í Hólaskógi er glæsilegur skáli, sturtur og gufubað sem margir nýttu sér. Maturinn var glæsilegur hjá Guðmundi kokki, Humarsúpa í forrétt með heimabökuðu brauði og kjúklingabringur í aðalrétt. Við deildum skálanum með tveimur öðrum hópum og máttum því ekki hafa mjög hátt þetta kvöld. Fólk spjallaði bara saman og hafði það huggulegt og hlakkaði til næsta dags.Annan daginn rigndi hressilega á okkur, en öll vorum við vel gölluð og létum það því ekki á okkur fá. Leiðin lá upp með línuveginum, þar meðfram voru ágætar moldargötur. Ætlunin var að skoða Háafoss en vegna veðurs og þeirri staðreynd að flestir voru búnir að sjá fossinn héldum við áfram sem leið lá yfir í Helgaskála. Í Helgaskála biðu okkar óvæntir gestir. Til stóð að við hefðum skálann út af fyrir okkur. En sjö ungar þýskar stúlkur voru búnar að hertaka hann. Þær voru mjög illa búnar á göngu yfir hálendið og hefðu getað orðið úti. Fólk í jeppaleiðangri kom þeim til hjálpar og keyrði þær í næsta skála þar sem þær urðu að gista eina nótt. Við Fáksfélgarnir vorum öll vel útbúin, til í hvaða veður sem var. En þýsku stúlkurnar voru bara í stuttbuxum og ermalausum bolum með allt dótið sitt rennandi blautt. Við gáfum þeim heita Humarsúpu og brauð sem þær þáðu með þökkum. Þær nánast grátbáðu um að fá að vera með okkur í skálanum sem var alveg sjálfsagt en þar sem skálinn var frekar lítill sváfu þær sjö saman í tveimur kojum.Við borðuðum svo góðan mat um kvöldið og tókum lagið. Þetta kvöld fór nánast allt í að tala um þessar ungu stúlkur og hvað ætti að gera fyrir þær. Skátaforinginn var tvítug stúlka og sú yngsta í hópnum var 14 ára. Okkur fannst ekki mikið vit í þessu ferðalagi þeirra, þær voru á leiðinni yfir í Þórsmörk sem er nú ekki beint á þessari leið. Þar sem ekkert símsamband var í skálanum fóru nokkrir í leiðangur til að ná símsambandi og hringdu í björgunarsveitina um kvöldið. Þeir tilkynntu um ferðir þýsku stúlknanna og hversu einstaklega illa búnar þær voru og tóku fram að væri ekkert vit væri í því að vita af þeim fara yfir allar stóru árnar á leiðinni yfir í Hólaskóg. Björgunarsveitin kom svo kl:07:00 morguninn eftir og skutluðu stúlkunum yfir í Hólaskóg. Þennan morgun skall svo á rigning og svartaþoka, sem olli því að við lögðum ekki af stað fyrr en um kl:14:00. Um leið og við stigum í hnakkinn stytti upp og birti til og fór veðrið batnandi upp frá því.Þriðja daginn lá leiðin frá Helgaskála, fórum reiðslóða sem lá upp með Leirá, meðfram Mikluöldu fram hjá Skyggnisöldu og að Svínárnesi. Í Svínárnesi er ágætis skáli og gátum við loks verið útaf fyrir okkur. Guðmundur kokkur tók á móti okkur með ávöxtum og kökum og sá um kvöldmatinn að vanda. Kveikt var upp í kamínunni og höfðum við það notalegt. Einnig var spilað á gítarinn og við sungum hátt og mikið.Fjórða daginn kvöddum við Svínárnes. Komum við í Leppistungum en þar var mjög gott að hvíla hesta og menn. Fórum jeppaslóða sem liggur að Kerlingarfjöllum eða langleiðina að Ásgarði, þar fórum við yfir brú á Jökulkvísl og héldum sem leið lá í Svartárbotna. Þetta var falleg en lang lengsta dagleiðin í ferðinni. Í Svartárbotnum er stór og glæsilegur skáli sem heitir Gíslaskáli. Þar var frábær aðstaða fyrir bæði menn og hesta. Eftir langan dag tókum við það rólega um kvöldið í glæsilegum skálanum.Fimmti dagurinn var hvíldardagur, flestir nutu þess að slappa vel af, fóru í gönguferðir, huguðu af hestunum, spiluðu og fl. Fengum frábæran mat eins og alltaf, sungum frameftir nóttu í miklu stuði.Sjötta daginn kvöddum við Svartárbotna, stefnan var tekin á Þverbrekkumúla, stoppuðum t.d. í Gránunesi, fórum meðfram Fúlukvísl, yfir Svartá og að Árbúðum. Þetta var falleg og skemmtileg leið. Við fengum yndislegt veður þennan dag. Árbúðir eru skáhalt á móti Hvítárnesi. Í Árbúðum var góð aðstaða bæði fyrir hesta og menn. Okkur var tilkynnt að sturtuaðstaðan væri biluð, en einn góður ferðafélagi að nafni Kjartan gerði sér lítið fyrir og lagaði dælurnar fyrir sturturnar og var snöggur að.Sjöunda daginn lá leiðin frá Árbúðum áfram niður með Svartá sem rennur í Hvítá, þar fórum við yfir á brú og við brúna var gangnamannaskáli og góð girðing sem við hvíldum hestanna vel í. Þaðan lá leiðin meðfram Bláfelli að austanverðu og Hvítá á vinstri hönd. Þetta voru ágætis reiðslóðar í hlíðinni. Hestarnir voru óvenju sprækir þennan dag þrátt fyrir yndislegt veður. Í einu stoppinu hjá okkur í hlíðinni voru allir tilbúnir og verið að kalla að nú værum við að fara taka upp línurnar (sem halda hestunum meðan við skiptum um hesta) en þá kallar einn “æ bíðið aðeins ég þarf að pissa” allt í lagi við biðum róleg og svo var allt klárt og við að fara taka upp línurnar þegar við sjáum annan stóran rekstur nálgast okkur hratt. Sem betur fór vorum við ekki lögð af stað því þá hefðu hóparnir blandast saman. Við náðum að halda okkar hópi saman meðan við horfðum á hina renna framhjá. Við biðum nokkuð lengi með að leggja af stað, þar til hinir voru komnir vel úr augsýn. En viti menn, um leið og við ætluðum að leggja af stað óð reksturinn okkar á eftir hinum rekstrinum, einstíginn meðfram hlíðinni. Við vorum fjögur sem fórum á harðastökki á eftir reksrinum okkar, þetta var eins og villta vestrinu og var ekki auðvelt að komast framfyrir og hvað þá að stoppa reksturinn og snúa honum við. En allt gekk þetta vel og höfðum við gaman að. Okkar leið lá síðan áfram yfir í Fremstaver þar sem við gistum í ágætis gangnamannaskála sunnan við Bláfell. Veðrið var yndislegt og lagðist hópurinn nánast allur í sólbað.Á áttunda degi kvöddum við Fremstaver, leiðin lá meðfram Sandá til að byrja með, síðan lá leiðin með Kjalvegi og tókum svo stefnuna á Gullfoss. Við fossinn er fínt hestagerði og var því tilvalið að stoppa vel þar. Meðan við röltum að skoða Gullfoss, hópuðust útlendingarnir að hestagerðinu og skoðuðu hestana okkar. Frá Gullfossi lá leiðin meðfram veginum að Kjóastöðum þar sem við gistum. Á Kjóastöðum er fín bændagisting og komust hestarnir í mikinn og góðan haga. Þarna fór virkilega vel um alla og sungum við eitthvað frameftir.Á níunda degi kvöddum við Kjóastaði í blíðskaparveðri. Nú lá leiðin að Brúarhlöðum, fram Tungufellsdal, upp Hlíðarfjall, í Fagradal, niður Kluftir og sem leið lá yfir á Kaldbak þar sem Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ferðafélagi, geymdi fyrir okkur hestana í góðum haga yfir nóttina en við vorum keyrð í rútu í Syðra- Langholt. Syðra-Langholt er við Stóru-Laxá í Hrunnamannahreppi, þar er bændagisting með heitum pottum sem sumir nýttu sér. Góð hlaða var á staðnum sem notuð var til að snæða kvöldverðinn og skemmtum við okkur vel með söng og gleði frameftir nóttu.Tíunda og síðasta daginn vorum við svo keyrð á Kaldbak þar sem hestarnir biðu okkar í blíðskapar veðri eða 26°c hita, sól og blanka logni. Leiðin var afskaplega falleg þennan dag. Við fórum frá Kaldbak yfir hálsa, yfir Stóru-Laxá, að Laxárdal og Skáldabúðum, að Fossseli og þaðan meðfram veginum yfir í Haga þar sem við hófum ferðina og bílarnir okkar biðu. Þetta var heitur og yndislegur dagur, góður endir á góðri ferð.Myndakvöld verður haldið úr báðum ferðunum og verður það auglýstFerðanefndin vill þakka öllum þeim sem tóku þátt í þessum ferðum með okkurSvandís og Gúndi
Tamningar og Þjálfun
Við hjá Hestaborg byrjum haust tamningarnar í byrjun september.Ef þú ert með hest sem vantar tamningu, endilega hafðu samband við okkur í síma 692-7986.
Allt efni er varið höfundarrétti - © Hestaborg - Allur réttur áskilinn. Afritun í heild eða hluta er með öllu óheimil. - hestaborg@hestaborg.is